22.10.2008 | 13:25
Launalækkun.
22.10.2008
Hlaup: 6,5km rólegt
Heilsa: Skánandi.
Skap: Slæmt.
Fékk að vita áðan hver launalækkun mín er. Hún er veruleg en ég má ekki ræða hve mikil. Það er mjög merkilegt þar sem áður hafði verið gefið í skin að enginn yrði fyrir verulegri skerðingu og flestir fengju enga. Þá er vont að fá fréttir eins og ég fékk í morgun. Ég fór þess vegna smá hring rólega í hádeginu með Evu og Öggu (hlaupandi). Þá ætla ég að skreppa í spinnig seinni partinn vona til að halda geðheilsunni. Nú er ég að hugsa framhaldið og það er enn óljóst.
Kv. Oddur K.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.